6. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 16. október 2013 kl. 09:02


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:02
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:02
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:10
Róbert Marshall (RM) fyrir GStein, kl. 09:02
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:10
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:02

RR og LínS boðuðu forföll.
PHB var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
ÁPÁ var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 11:14
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 2. mál - tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014 Kl. 09:03
Á fund nefndarinnar komu Guðrún Þorleifsdóttir, Ingibjörg Helga Helgadóttir og Maríanna Jónasdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni efni þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) Fjármálastöðugleiki 2013/2 - kynning. Kl. 10:03
Á fund nefndarinnar komu Harpa Jónsdóttir og Sigríður Benediktsdóttir frá Seðlabanka Íslands. Gestirnir kynntu nefndinni efni ritsins „Fjármálastöðugleiki 2013/2“ og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

4) 9. mál - greiðsluþjónusta Kl. 11:16
Fyrir fundinn var lögð tillaga um að málið yrði sent til umsagnar með fresti til að skila umsögnum til 4. nóvember nk. Tillagan var samþykkt.

5) 35. mál - mótun viðskiptastefnu Íslands Kl. 11:17
Fyrir fundinn var lögð tillaga um að málið yrði sent til umsagnar með fresti til að skila umsögnum til 4. nóvember nk. Tillagan var samþykkt.

6) Önnur mál Kl. 11:19
Nefndin ræddi ýmis mál.

Fundi slitið kl. 11:42