22. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 25. nóvember 2013 kl. 10:36


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 10:36
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 10:36
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 10:36
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 10:39
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:36
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 10:36
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 10:36
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 10:36

MGM var forfölluð af persónulegum ástæðum.
JÞÓ var fjarverandi.

Nefndarritari: Benedikt S. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 11:40
Dagskrárliðurinn var ekki ræddur.

2) Hugmyndir um breyt. á l. um skyldutryggingu lífeyrisréttinda o.fl. Kl. 10:36
Á fund nefndarinnar kom Þórey Þórðardóttir frá Landssambandi lífeyrissjóða. Gesturinn kynnti nefndinni afstöðu til hugmynda um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og svaraði spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) 165. mál - Landsvirkjun Kl. 11:03
Á fund nefndarinnar kom Hrafn Hlynsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gesturinn kynnti nefndinni þingmálið og svaraði spurningum nefndarmanna að því loknu.
Samþykkt var að SJS yrði framsögumaður málsins.

4) 168. mál - vátryggingastarfsemi og miðlun vátrygginga Kl. 11:21
Á fund nefndarinnar komu Kjartan Gunnarsson og Sóley Ragnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni þingmálið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Samþykkt var að VilB yrði framsögumaður málsins.

5) Önnur mál Kl. 11:40
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:40