28. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 6. desember 2013 kl. 10:31


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 10:31
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 10:31
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 10:36
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 11:24
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 10:31
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 10:34
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 10:31
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 10:31

LínS og JÞÓ voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 10:31
Umfjöllun um dagskrárliðinn var frestað til næsta fundar.

2) 168. mál - vátryggingastarfsemi og miðlun vátrygginga Kl. 10:32
Á fund nefndarinnar komu Guðrún Áslaug Jósepsdóttir og Ragnheiður Morgan Sigurðardóttir frá Fjármálaeftirlitinu. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu til málsins og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 157. mál - aukatekjur ríkissjóðs Kl. 11:10
Nefndin ræddi málið.

4) 156. mál - verslun með áfengi og tóbak Kl. 11:14
Nefndin ræddi málið.

5) 177. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 11:47
VilB var valinn framsögumaður málsins.
Nefndin ræddi málið.

6) Önnur mál Kl. 11:52
PHB var valinn framsögumaður 204. máls, tekjuskattur (afleiðuviðskipti o.fl.).
WÞÞ var valinn framsögumaður 205. máls, tollalög o.fl. (sektarfjárhæðir og auðveldari framkvæmd).
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:53