48. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 10. febrúar 2014 kl. 09:32


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:32
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 09:32
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:32
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 10:09
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:13
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 09:32
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:35
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:32

Guðmundur Steingrímsson og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 09:32
Umfjöllun um dagskrárliðinn var frestað til næsta fundar.

2) 168. mál - vátryggingastarfsemi og miðlun vátrygginga Kl. 09:34
Á fund nefndarinnar komu Kjartan Gunnarsson og Sóley Ragnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Valdimar Gunnar Hjartarson og Ragnheiður Morgan Sigurðardóttir frá Fjármálaeftirlitinu. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 274. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 09:53
Á fund nefndarinnar komu Kjartan Gunnarsson og Sóley Ragnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 236. mál - sala fasteigna og skipa Kl. 10:15
Á fund nefndarinnar komu Ólafur Egill Jónsson og Sigurbjörg Gunnarsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni þingmálið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 189. mál - verðbréfaviðskipti og kauphallir Kl. 10:39
Nefndin ræddi málið.

6) Önnur mál Kl. 10:43
Nefndin ræddi hugmyndir að dagskrá næstu funda.
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:43