54. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 7. maí 2015 kl. 13:00


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 13:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 13:00
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 13:00
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 13:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 13:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 13:00
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 13:10
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 13:00

Pétur H. BLöndal boðaði forföll.
Jón Þór Ólafsson og Unnur Brá Konráðsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gautur Sturluson
Þorbjörn Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Fundargerð 53. fundar var samþykkt.

2) 571. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 13:05
Á fund nefndarinnar mættur þeir Jón Þór Sturluson, Elvar Guðmundsson og Hjálmar S. Brynjólfsson frá Fjármálaeftirlitinu og ræddu við nefndina um eiginfjárauka og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 622. mál - viðurlög við brotum á fjármálamarkaði o.fl. Kl. 14:00
Á fund nefndarinnar komu Leifur Arnkell Skarphéðinsson og Sóley Ragnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og kynntu málið fyrir nefndinni og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 14:30
Almennar umræður um komandi verkefni nefndarinnar.

Ekki var fleira gert á þessum fundi.

Fundi slitið kl. 14:45