57. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 13. maí 2015 kl. 09:00


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:00
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:00

Unnur Brá Konráðsdóttir var á öðrum nefndarfundi og Vilhjálmur Bjarnason boðaði forföll. Guðmundur Steingrímsson og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gautur Sturluson
Þorbjörn Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Afgreiðslu fundargerðar var frestað til næsta fundar.

2) 571. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar mættu þeir Leifur Arnkell Skarphéðinsson og Tómas Brynjólfsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og kynntu hvernig statt væri með heildarendurskoðun fjármálalöggjafar og hvernig mál nr. 571 fellur inn í þá heildarmynd. Einnig svöruðu gestir almennum spurningum nefndarmanna um málið.

3) 561. mál - vextir og verðtrygging o.fl. Kl. 11:10
málið var ekki tekið fyrir á þessum fundi.

4) Önnur mál Kl. 11:10
Nefndin samþykkti að eiga sameiginlegan fund með fjárlaganefnd nk. mánudag kl. 9:30 um mál nr. 705 um meðferð og sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

Fundi slitið kl. 11:15