69. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, fimmtudaginn 11. júní 2015 kl. 16:50


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 16:50
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 16:50
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) fyrir Árna Pál Árnason (ÁPÁ), kl. 16:50
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 16:50
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 16:50
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 16:50
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 16:50

Guðmundur Steingrímsson, Jón Þór Ólafsson og Vilhjálmur Bjarnason voru fjarverandi

Nefndarritari: Þorbjörn Björnsson

Bókað:

1) 786. mál - stöðugleikaskattur Kl. 16:50
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með frest til 18. júní nk. Frosti Sigurjónsson var skipaður framsögumaður málsins.

2) 787. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 17:00
Nendin ákvað að senda málið til umsagnar með frest til 18. júní nk. Sigríður Á Andersen var skipuð framsögumaður málsins.

3) Önnur mál Kl. 17:11
Ekki var fleira gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 17:10