4. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 23. september 2015 kl. 09:00


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:00
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:00
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 09:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:00

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað til næsta fundar.

2) 132. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 09:05
Á fundinn mættu Anna Valbjörg Ólafsdóttir og Hafdís Ólafsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, kynntu frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Gerð griðareglna og úttekt á úrræðum skattyfirvalda til að sporna gegn skattsvikum Kl. 09:25
Á fundinn mættu Ása Ögmundsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Lisa Yoder frá skattrannsóknarstjóra og Guðni Ólafsson frá tollstjóra, fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 7. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 09:00
Frosti Sigurjónsson var skipaður framsögumaður málsins.

5) 8. mál - virðisaukaskattur Kl. 09:00
Willum Þór Þórsson skipaður framsögumaður málsins.

6) Önnur mál Kl. 10:30
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 10:30