53. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 27. apríl 2016 kl. 10:00


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 10:00
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 10:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 10:14
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 10:00
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 10:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 10:10
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 10:05
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 10:00

Líneik Anna Sævarsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) 383. mál - fasteignalán til neytenda Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar mætti Guðmundur Kári Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Fór hann yfir minnisblað ráðuneytisins um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

2) 396. mál - vátryggingastarfsemi Kl. 10:45
Á fund nefndarinnar mættu Sóley Ragnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Sigurður Freyr Jónatansson frá Fjármálaeftirlitinu. Fóru þau yfir minnisblað um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 11:27
Fundargerðir frá fundum 50, 51 og 52 samþykktar. Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:27