59. fundur
fjárlaganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 11. maí 2016 kl. 09:00


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:00
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 09:26
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 09:42
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00

Valgerður Gunnarsdóttir var fjarverandi vegan veikinda.
Ásmundur Einar Daðason vék af fundi kl. 11:20, Páll Jóhann Pálsson kl. 11:10, Guðlaugur Þór Þórðarson kl. 12:02, Brynhildur Pétursdóttir kl. 12:35 og Oddný G. Harðardóttir kl. 12:35.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 740. mál - fjármálaáætlun 2017--2021 Kl. 09:00
Frá innanríkisráðuneytinu komu til fundarins Ragnhildur Hjaltadóttir, Pétur Fenger, Sigurbergur Björnsson og Ingilín Kristmannsdóttir. Gestirnir lögðu fram kynningarefni og fóru yfir þau mál í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2017-2021 sem eru á ábyrgðarsviði ráðuneytisins. Einnig svöruðu þau spurningum frá nefndarmönnum.
Um kl. 11:00 komu til fundarins frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu Illugi Gunnarsson ráðherra, Ásta Magnúsdóttir, Ásdís Jónsdóttir, Auður Björg Árnadóttir, Gísli Þór Magnússon, Sigríður Hallgrímsdóttir og Jóhannes Stefánsson. Gestirnir lögðu fram kynningarefni og fóru yfir þau mál í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2017-2021 sem eru á ábyrgðarsviði ráðuneytisins. Einnig svöruðu þau spurningum frá nefndarmönnum.

2) Önnur mál Kl. 12:44
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 12:45
Fundargerð 58. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 12:45