60. fundur
fjárlaganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 18. maí 2016 kl. 09:00


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:10
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 09:00

Guðlaugur Þór Þórðarson var fjarverandi vegna starfa á vegum Alþingis erlendis. Oddný G. Harðardóttir og Ásmundur Einar Daðason voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 740. mál - fjármálaáætlun 2017--2021 Kl. 09:00
Til fundarins komu kl. 9 frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu Sigrún Magnúsdóttir ráðherra, Sigríður Auður Arnar og Stefán Magnússon. Gestirnir lögðu fram og fóru yfir kynningu á þeim málefnasviðum í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021 sem eru á verkefnasviði ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Til fundarins komu kl. 10:05 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu Gunnar Bragi Sveinsson ráðherra, Kristján Skarphéðinsson, Ólafur Friðriksson, Hanna Dóra Hólm Másdóttir, Guðrún Gísladóttir, Jóhann Guðmundsson, Sunna Gunnars Marteinsdóttir og Gauti Geirsson. Gestirnir lögðu fram og fóru yfir kynningu á þeim málefnasviðum í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021 sem eru á verkefnasviði ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna. Einnig var lagt fram minnisblað sem sýnir skiptingu framlaga í fyrirhuguðum búvörusamningum á árunum 2017-2026.
Á fundinum voru einnig gestir frá viðkomandi fagnefndum Alþingis.
Fundi með iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu var frestað.

2) Önnur mál Kl. 11:53
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:55
Fundargerð 59. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:55