63. fundur
fjárlaganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 23. maí 2016
kl. 09:40
Mættir:
Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:40Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 09:55
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 09:40
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:55
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:40
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:40
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:40
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 09:40
Oddný G. Harðardóttir var fjarverandi. Ásmundur Einar Daðason og Brynhildur Pétursdóttir véku af fundi kl. 10:56 til að fara á fund þingflokksformanna.
Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) 740. mál - fjármálaáætlun 2017--2021 Kl. 09:40
Til fundarins komu frá velferðarráðuneytinu Eygló Harðardóttir ráðherra, Matthías Páll Imsland, Bolli Þór Bollason, Sturlaugur Tómasson, Ólafur Darri Andrason og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir. Gestirnir lögðu fram og fóru yfir kynningu á þeim málefnasviðum í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021 sem eru á verkefnasviði ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna. Einnig voru á fundinum gestir frá velferðarnefnd Alþingis.
2) Önnur mál Kl. 11:04
Fleira var ekki gert.
3) Fundargerð Kl. 11:05
Afgreiðslu fundargerða var frestað.
Fundi slitið kl. 11:05