41. fundur
fjárlaganefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 5. apríl 2017 kl. 09:15


Mættir:

Haraldur Benediktsson (HarB) formaður, kl. 09:15
Hanna Katrín Friðriksson (HKF) 1. varaformaður, kl. 09:15
Theodóra S. Þorsteinsdóttir (ThÞ) 2. varaformaður, kl. 09:15
Andrés Ingi Jónsson (AIJ) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 09:15
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:21
Njáll Trausti Friðbertsson (NF), kl. 09:15
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:32

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir mætti til fundarins kl. 10:21 og vék þá Andrés Ingi Jónsson af fundinum. Silja Dögg Gunnarsdóttir vék af fundinum kl. 11:03 og Theodóra S. Þorsteinsdóttir kl. 11:30.
Oddný G. Harðardóttir og Páll Magnússon voru fjarverandi.

Nefndarritari: Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 402. mál - fjármálaáætlun 2018--2022 Kl. 09:15
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Elín Guðjónsdóttir, Maríanna Jónasdóttir, Sigurður Helgi Helgason, Anna Borgþórsdóttir Olsen, Högni Haraldsson og Guðrún Þorleifsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir lögðu fram og fóru yfir kynningarefni um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2018-2022 og svöruðu spurningum nefndarmanna um hana.

2) Önnur mál Kl. 11:35
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:37
Fundargerð 40. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:38