48. fundur
fjárlaganefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 5. maí 2017 kl. 09:00


Mættir:

Haraldur Benediktsson (HarB) formaður, kl. 09:00
Theodóra S. Þorsteinsdóttir (ThÞ) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:11
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NF), kl. 09:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00

Hanna Katrín Friðriksson og Páll Magnússon voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 402. mál - fjármálaáætlun 2018--2022 Kl. 09:00
Til fundar við nefndina komu Sveinn Arason og Jón Loftur Björnsson frá Ríkisendurskoðun. Þeir fóru yfir umsögn stofnunarinnar um fjármálaáætlunina og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál Kl. 10:00
Rætt var um vinnuna sem framundan er og skipulag hennar.

3) Fundargerð Kl. 10:11
Fundargerð 47. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:12