16. fundur
fjárlaganefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 5. febrúar 2018 kl. 09:30


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:30
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:30

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson og Páll Magnússon voru fjarverandi vegna veðurs.

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 65. mál - stofnefnahagsreikningar Kl. 09:30
Til fundarins komu Ingi K. Magnússon og Birgir Finnbogason frá Ríkisendurskoðun og fóru yfir umsögn stofnunarinnar um þingsályktunina auk þess að svara spurningum nefndarmanna.

2) Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir Kl. 10:20
Tilnefningu í samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir var frestað til næsta fundar.

3) Tilnefning í stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra Kl. 10:22
Tilnefningu frestað til næsta fundar.

4) Önnur mál Kl. 10:23
Rætt var um upplýsingaöflun vegna nokkurra fjárhagsmála ríkisins og nefndarritara falið að afla þeirra.

5) Fundargerð Kl. 10:25
Samþykkt fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 10:25