27. fundur
fjárlaganefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 14. mars 2018
kl. 09:00
Mættir:
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:00Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NF), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:00
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:19
Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi vegna starfa á vegum Alþingis erlendis.
Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) Framkvæmd fjárlaga 2018 Kl. 09:00
Til fundarins komu Gísli Magnússon, Auður Björg Árnadóttir og Helgi Freyr Kristinsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Kl. 10:20 mættu Ingilín Kristmannsdóttir og Sigurbergur Björnsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Jónas Snæbjörnsson frá Vegagerðinni. Þau fóru yfir áhættuþætti í rekstri ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna um þá.
2) Önnur mál Kl. 10:55
Formaður tilkynnti að þingsályktunartillaga um fjármálastefnu 2018-2022 yrði afgreidd úr nefndinni á morgun. Fleira var ekki gert.
3) Fundargerð Kl. 10:59
Fundargerð 26. fundar var afgreidd.
Fundi slitið kl. 11:05