60. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 23. ágúst 2016 kl. 09:00


Mættir:

Ögmundur Jónasson (ÖJ) formaður, kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ) 1. varaformaður, kl. 09:00
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:15
Helgi Hjörvar (HHj), kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00

Höskuldur Þórhallsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Elín Valdís Þorsteinsdóttir
Kristel Finnbogad. Flygenring

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna Kl. 09:00
Formaður kynnti drög að áliti nefndarinnar og að stefnt væri að því að taka fyrir að nýju á næsta fundi og afgreiða eftir viku. Nefndin fjallaði um málið.

3) 659. mál - meðferð sakamála Kl. 09:12
Nefndin fjallaði um málið og efni umsagnar til allsherjar- og menntamálanefndar um málið.

4) 681. mál - ákvarðanir EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:26
Formaður kynnti minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og utanríkisráðuneyti um heimildir stjórnvalda til öryggisráðstafana skv. EES-samningnum, s.s. setningar neyðarlaga. Árna Páli Árnasyni og Birgi Ármannssyni falið að skoða málið fyrir nefndina.

5) Kosningar til Alþingis (viðmiðunardagur kjörskrár) Kl. 09:50
Formaður kynnti frumvarp til laga um breytingar á lögum um kosningar til Alþingis sem varða viðmiðunardag umsóknar kjósenda erlendis um kosningarétt. Nefndin samþykkti að flytja málið.

6) Önnur mál Kl. 09:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:55