17. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 13. mars 2018 kl. 13:00


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 13:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 13:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) 2. varaformaður, kl. 13:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 13:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 13:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 13:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 13:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 13:32

Þórunn Egilsdóttir boðaði seinkun á fundinn vegna annars fundar.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Fundargerðir 13. - 15. fundar voru samþykktar.

2) 264. mál - endurnot opinberra upplýsinga Kl. 13:05
Á fundinn kom Oddur Þorri Viðarsson frá forsætisráðuneytinu og kynnti frumvarpið ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.

Samþykkt að Líneik Anna Sævarsdóttir verði framsögumaður málsins.

3) Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2016 Kl. 13:25
Nefndin fjallaði um málið.

4) Önnur mál Kl. 13:34
Nefndin ræddi önnur mál í nefndinni.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:36