12. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 28. nóvember 2011 kl. 10:00


Mættir:

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (GLG) formaður, kl. 10:00
Atli Gíslason (AtlG), kl. 10:00
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 10:07
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 10:05
Mörður Árnason (MÁ), kl. 10:00
Róbert Marshall (RM), kl. 10:00
Þór Saari (ÞSa), kl. 10:00
Þuríður Backman (ÞBack), kl. 10:00

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerðir síðustu funda. Kl. 10:00
Farið var yfir fundargerðir síðustu tveggja funda og þær samþykktar til birtingar á vef nefndarinnar.

2) 58. mál - skilgreining auðlinda Kl. 10:02
Lögð var fram tillaga að ÞBack yrði framsögumaður um málið. Tillagan var samþykkt án athugasemda.

3) 192. mál - fólksflutningar og farmflutningar á landi Kl. 10:05
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

4) 225. mál - náttúruvernd Kl. 10:21
Á fund nefndarinnar komu Steinunn Fjóla Sigurðardóttir og Sigurður Á. Þráinsson frá umhverfisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarinnar.

5) Önnur mál. Kl. 11:27
Fleira var ekki rætt.
BÁ vék af fundi kl. 11.05.
ÁJ og ÓÞ voru fjarverandi.

Fundi slitið kl. 11:28