25. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 5. desember 2012 kl. 09:11


Mættir:

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (GLG) formaður, kl. 09:11
Atli Gíslason (AtlG), kl. 09:11
Álfheiður Ingadóttir (ÁI), kl. 09:39
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 09:16
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 10:22
Mörður Árnason (MÁ), kl. 09:11
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:11
Róbert Marshall (RM), kl. 09:11
Þór Saari (ÞSa), kl. 09:11

ÁJ var fjarverandi.

Nefndarritari: Þórunn Pálína Jónsdóttir

Bókað:

1) 415. mál - stjórnarskipunarlög Kl. 09:13
Nefndin fékk á sinn fund Katrínu Oddsdóttur og Gísla Tryggvason sem svöruðu spurningum nefndarmanna. Einnig fékk nefndin á sinn fund Sigurð Líndal sem kynnti afstöðu sína og svaraði spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál. Kl. 11:52
Fleira var ekki rætt

Fundi slitið kl. 12:03