52. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 11. maí 2016 kl. 09:00


Mættir:

Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 09:00
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:25
Óttarr Proppé (ÓP) fyrir Róbert Marshall (RM), kl. 09:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Vilhjálmur Árnason sat aðeins þann hluta fundarins sem var sameiginlegur með fjárlaganefnd.
Katrín Júlíusdóttir, Ásta Guðrún Helgadóttir og Elín Hirst voru fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) 740. mál - fjármálaáætlun 2017--2021 Kl. 09:00
Nefndin sat hluta fundar fjárlaganefndar með fulltrúum innanríkisráðuneytisins vegna tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021.

2) 160. mál - aðgerðaáætlun gegn súrnun sjávar á norðurslóðum Kl. 10:05
Á fund nefndarinnar komu Jón Ólafsson haffræðingur og Sigurður Björnsson frá Rannís.

3) 150. mál - uppbygging áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi Kl. 10:50
Á fund nefndarinnar kom Hreinn Haraldsson frá Vegagerðinni og Helena Karlsdóttir frá Ferðamálastofu í gegnum síma.

4) 275. mál - hæfisskilyrði leiðsögumanna Kl. 11:15
Á fund nefndarinnar komu Gunnar Valur Sveinsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Ólafur A. Jónsson og Jón Smári Jónsson frá Umhverfisstofnun og Helena Karlsdóttir frá Ferðamálastofu í gegnum síma.

5) 638. mál - fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018 Kl. 11:50
Nefndin fjallaði um málið.

6) 328. mál - notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum Kl. 12:00
Nefndin fjallaði um málið.

7) Önnur mál Kl. 12:05
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:05