62. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 6. júní 2016
kl. 09:40
Mættir:
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 09:40Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 09:50
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 09:40
Ásta Guðrún Helgadóttir (ÁstaH), kl. 09:40
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:40
Elín Hirst (ElH), kl. 09:40
Róbert Marshall (RM), kl. 09:40
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:40
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:40
Ásta Guðrún Helgadóttir vék af fundi kl. 10:15.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) 638. mál - fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018 Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið.
2) Heimsókn í Sjávarklasann Kl. 10:30
Nefndin heimsótti Sjávarklasann á Grandagarði og hitti þar Þór Sigfússon og Hjördísi Sigurðardóttur sem kynnti BioDome verkefnið fyrir nefndinni.
3) Önnur mál Kl. 11:45
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:45