11. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 13. mars 2017 kl. 09:15


Mættir:

Valgerður Gunnarsdóttir (ValG) formaður, kl. 09:15
Pawel Bartoszek (PawB) 1. varaformaður, kl. 09:15
Bryndís Haraldsdóttir (BHar) 2. varaformaður, kl. 09:25
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 09:15
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:15
Einar Brynjólfsson (EB), kl. 09:15
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 09:15
Hildur Knútsdóttir (HKn) fyrir Kolbein Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:15

Teitur Bjorn Einarsson boðaði forföll vegna veikinda.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Dagskrárlið frestað.

2) 128. mál - farþegaflutningar og farmflutningar Kl. 09:15
Nefndin hélt áfram umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Berglindi Kristinsdóttur frá Samtökum sveitarfélaga á Suðurnesjum, Bjarna Guðmundsson frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og Heiðu Björk Hilmisdóttur og Jóhannes Rúnarsson frá Strætó bs. Nefndin átti símafund við Björgu Björnsdóttur frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 207. mál - áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða Kl. 10:40
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti.

Ásmundur Friðriksson var valinn framsögumaður málsins.

4) 234. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði samgangna Kl. 10:45
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti.

Pawel Bartoszek var valinn framsögumaður málsins.

5) Önnur mál Kl. 10:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:45