20. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 24. apríl 2017 kl. 09:30


Mættir:

Valgerður Gunnarsdóttir (ValG) formaður, kl. 09:30
Pawel Bartoszek (PawB) 1. varaformaður, kl. 09:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:30
Einar Brynjólfsson (EB), kl. 09:30
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 09:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:40
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:30

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) 128. mál - farþegaflutningar og farmflutningar Kl. 09:32
Málið var afgreitt með samþykkti allra nefndarmanna. Allir nefndarmenn standa saman að nefndaráliti og breytingartillögum.

Nefndin ákvað að Kolbeinn Óttarsson Proppé yrði framsögumaður málsins í stað Bryndísar Haraldsdóttur.

2) Umfjöllun um lagfæringu á lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa o.fl. Kl. 10:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

3) 146. mál - orkuskipti Kl. 10:25
Nefndin hélt áfram umfjöllun um málið.

4) 402. mál - fjármálaáætlun 2018--2022 Kl. 11:05
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið.

5) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:15