10. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 1. mars 2018 kl. 09:00


Mættir:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:00
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:00
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:00
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Jón Gunnarsson og Hanna Katrín Friðriksson boðuðu forföll.

Nefndarritari: Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 185. mál - mannvirki Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar mættu þeir Hafsteinn Pálsson og William Freyr Huntingdon-Wiliams frá umhverfis og auðlindaráðuneyti og kynntu málið fyrir nefndinni auk þess að svara spurningum nefndarmanna.

3) 248. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. Kl. 09:55
Ákveðið að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti.

4) 201. mál - frelsi á leigubifreiðamarkaði Kl. 09:57
Ákveðið að fresta málinu til næsta fundar að beiðni Hönnu Katrínar Friðriksson

5) Önnur mál Kl. 10:00
Vakin var athygli nefndarmanna á að ráðgerður er sameiginlegur fundur umhverfis- og samgöngunefndar og utanríkismálanefndar kl 9:00 í fyrramálið 2. mars með fulltrúum Samgöngustofu, Samgöngu og sveitarstjórnarráðherra og fulltrúum Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.

Fundi slitið kl. 10:00