52. fundur
utanríkismálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 9. maí 2014 kl. 09:00


Mættir:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 09:11
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD) 1. varaformaður, kl. 09:08
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 09:08
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:08
Svandís Svavarsdóttir (SSv) fyrir ÁÞS, kl. 09:08
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 09:08

Frosti Sigurjónsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Óttarr Proppé voru fjarverandi.

Nefndarritari: Stígur Stefánsson

1613. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) 340. mál - umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka Kl. 09:11
Nefndin hélt áfram samhliða umfjöllun um þrjú þingmál:
- mál 340: tillögu til þingsályktunar um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og um eflingu samstarfs við Evrópusambandið og Evrópuríki,
- mál 344: tillögu til þingsályktunar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið,
- mál 352: tillögu til þingsályktunar um formlegt hlé á aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins og þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræðurnar.

Á fund nefndarinnar komu Kolbeinn Árnason, Karen Kjartansdóttir og Friðrik Friðriksson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Þau fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 344. mál - ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið Kl. 09:11
Sjá dagskrárlið 1.

3) 352. mál - formlegt hlé á aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins og þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræðurnar Kl. 09:11
Sjá dagskrárlið 1.

4) 348. mál - mótmæli gegn ofsóknum gegn samkynhneigðum í Úganda Kl. 10:09
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Birgir Ármannsson framsögumaður, Ásmundur Einar Daðason, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Vilhjálmur Bjarnason og Össur Skarphéðinsson.

5) Önnur mál Kl. 10:12
Rætt var um Vestur-Sahara.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15