14. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 19. nóvember 2015
kl. 09:00
Mættir:
Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 09:00Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) 1. varaformaður, kl. 09:00
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 09:08
Halldóra Mogensen (HallM) fyrir Birgittu Jónsdóttur (BirgJ), kl. 09:00
Karen Elísabet Halldórsdóttir (KEH), kl. 09:08
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 09:08
Vilhjálmur Bjarnason var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Óttarr Proppé boðaði forföll.
Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
1696. fundur utanríkismálanefndar
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 13. fundar var samþykkt.
2) Hryðjuverkin í París. Kl. 09:20
Á fund nefndarinnar komu Jörundur Valtýsson, Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir og Jónas Haraldsson frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir fóru yfir viðbrögð Íslands og alþjóðasamfélagsins vegna hryðjuverkaárásanna í París og stöðu mála í Sýrlandi og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) Önnur mál Kl. 10:19
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:20