16. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 27. nóvember 2015 kl. 08:30


Mættir:

Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 08:46
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) 1. varaformaður, kl. 09:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 08:46
Elín Hirst (ElH), kl. 08:46
Kristján L. Möller (KLM) fyrir Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 08:47
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 08:46
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 08:46
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS) fyrir Karl Garðarsson (KG), kl. 08:47

Frosti Sigurjónsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Stígur Stefánsson

1698. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:49
Fundargerð 15. fundar var samþykkt.

2) 91. mál - alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl. Kl. 08:50
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

Á fund nefndarinnar komu Ágúst Geir Ágústsson frá forsætisráðuneyti og Matthías G. Pálsson frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá komu á fund nefndarinnar Engilbert Guðmundsson, Ágústa Gísladóttir og Hannes Hauksson frá ÞSSÍ. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 10:28
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:28