17. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 30. nóvember 2015 kl. 19:00


Mættir:

Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) 1. varaformaður, kl. 19:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 19:00
Kristján L. Möller (KLM) fyrir Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 19:00
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 19:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 19:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS) fyrir Karl Garðarsson (KG), kl. 19:00

Hanna Birna Kristjánsdóttir var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Elín Hirst og Frosti Sigurjónsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

1699. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) 91. mál - alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl. Kl. 19:05
Á fund nefndarinnar komu Kristján Andri Stefansson, Helga Hauksdóttir, Harald Aspelund og María Erla Marelsdóttir frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá kom á fund nefndarinnar Þórir Guðmundsson frá Rauða krossi Íslands. Gesturinn fór yfir málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

2) Fundargerð Kl. 21:05
Fundargerð 16. fundar var samþykkt.

3) Önnur mál Kl. 21:06
Nefndin fjallaði um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 21:10