32. fundur
velferðarnefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 11:17


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 11:17
Björt Ólafsdóttir (BjÓ) 2. varaformaður, kl. 11:17
Brynjar Níelsson (BN), kl. 11:17
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 11:17
Helgi Hjörvar (HHj) fyrir Guðbjart Hannesson (GuðbH), kl. 11:17
Sigríður Á. Andersen (SÁA) fyrir Ragnheiði Ríkharðsdóttur (RR), kl. 11:17
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 11:17

Ásmundur Friðriksson og Páll Jóhann Pálsson boðuðu forföll.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:17
Samþykkt fundargerðar var frestað.

2) 408. mál - lyfjalög Kl. 11:17
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar. Ákveðið var að Páll Jóhann Pálsson yrði framsögumaður málsins.

3) 237. mál - húsaleigubætur Kl. 11:18
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar. Ákveðið var að Sigríður Ingibjörg Ingadóttir yrði framsögumaður málsins.

4) Önnur mál Kl. 11:19
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:19