11. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 4. nóvember 2015 kl. 09:04


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:04
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 09:15
Páll Valur Björnsson (PVB) 2. varaformaður, kl. 09:04
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:04
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:04
Hörður Ríkharðsson (HR) fyrir Ólínu Kjerúlf Þorðvarðardóttur (ÓÞ), kl. 09:04
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 09:04
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:04
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:04
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:14

Elsa Lára Arnardóttir vék af fundi kl. 11:04.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:04
Fundargerð 10. fundar var samþykkt.

2) 25. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Anna María Jónsdóttir frá Miðstöð foreldra og barna, Guðný Björk Eydal frá Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd, Elísabet Gísladóttir frá umboðsmanni barna og Ragna K. Marinósdóttir frá Umhyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum.

3) 229. mál - staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni Kl. 10:00
Ákveðið var að Silja Dögg Gunnarsdóttir yrði framsögumaður málsins. Á fund nefndarinnar komu Ása Þórhildur Þórðardóttir og Margrét Björnsdóttir frá velferðarráðuneyti.

4) Önnur mál Kl. 11:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:33