38. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 15. febrúar 2016
kl. 09:04
Mættir:
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:04Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 09:26
Páll Valur Björnsson (PVB) 2. varaformaður, kl. 09:04
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:04
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:04
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:12
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:04
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:05
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:06
Ragnheiður Ríkharðsdóttir boðaði forföll vegna veikinda. Elsa Lára Arnardóttir boðaði seinkun.
Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:04
Fundargerð 37. fundar var samþykkt.
2) 407. mál - húsnæðisbætur Kl. 09:06
Á fund nefndarinnar komu fyrst Lúðvík Elíasson og Sigríður Benediktsdóttir frá Seðlabanka Íslands og næst Bryndís Snæbjörnsdóttir og Friðrik Sigurðsson frá Landssamtökunum Þroskahjálp.
3) 435. mál - almennar íbúðir Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar komu fyrst Lúðvík Elíasson og Sigríður Benediktsdóttir frá Seðlabanka Íslands og næst Bryndís Snæbjörnsdóttir og Friðrik Sigurðsson frá Landssamtökunum Þroskahjálp.
4) Önnur mál Kl. 11:04
Fundi slitið kl. 11:08