97. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 23. september 2016 kl. 09:00


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 09:00
Páll Valur Björnsson (PVB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:00

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir boðaði forföll. Unnur Brá Konráðsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 96. fundar samþykkt.

2) 857. mál - almannatryggingar o.fl. Kl. 09:00
Á fundinn mættu Ágúst Þór Sigurðsson og Hildur Sverrisdóttir Röed frá velferðarráðuneytinu. Ræddu þau minnisblað ráðuneytisins um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Breyting á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (staða stofnframlaga) Kl. 10:55
Ákveðið var að bíða með afgreiðslu málsins.

4) Önnur mál Kl. 10:55
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 10:55