12. fundur
velferðarnefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 1. mars 2017 kl. 09:09


Mættir:

Nichole Leigh Mosty (NicM) formaður, kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 1. varaformaður, kl. 09:00
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:10
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:16
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Jóna Sólveig Elínardóttir (JSE), kl. 09:10
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:09

Jóna Sólveig Elínardóttir vék af fundi kl. 10:59. Steingrímur J. Sigfússon vék af fundi kl. 11:22.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:09
Fundargerðir 8. til 11. fundar voru samþykktar.

2) 80. mál - sjúkratryggingar Kl. 09:09
Á fundinn mættu Steingrímur Ari Arason og Ingibjörg K. Þorsteinsdóttir frá Sjúkratryggingum Íslands. Gerðu þau grein fyrir sjónarmiðum sínum um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Málefni hjúkrunarheimila Kl. 10:00
Á fundinn mættu Bryndís Þorvaldsdóttir og Vilborg Ingólfsdóttir frá velferðarráðuneyti. Gerðu þau grein fyrir sjónarmiðum sínum um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 3. mál - sálfræðiþjónusta í framhaldsskólum Kl. 11:25
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Nichole Leigh Mosty yrði framsögumaður málsins.

5) 115. mál - stytting biðlista á kvennadeildum Kl. 11:26
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Guðjón S. Brjánsson yrði framsögumaður málsins.

6) 62. mál - heildstæð stefna í málefnum einstaklinga með heilabilun Kl. 11:27
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Elsa Lára Arnardóttir yrði framsögumaður málsins.

7) Önnur mál Kl. 11:27
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 11:27