Bein útsending frá fundi um skýrslu peningastefnunefndar 25. apríl

22.4.2016

Opinn fundur verður í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis kl. 9.30 mánudaginn 25. apríl, fundarefnið er skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis í apríl 2016. Bein útsending verður frá fundinum. Gestir frá Seðlabanka Íslands verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri o.fl.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.