Bein útsending frá fundi um störf peninga­stefnu­nefndar

7.4.2015

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund mánudaginn 13. apríl kl. 9:30 um störf peningastefnunefndar.

 
Til umfjöllunar á fundinum verður skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis frá 16. janúar 2015.

Gestir frá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri, ásamt Arnóri Sighvatssyni, Gylfa Zoëga og Rannveigu Sigurðardóttur.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir. Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.