Bein útsending frá fundi velferðarnefndar um barnaverndarmál

29.4.2018

Opinn fundur verður haldinn í velferðarnefnd með félags- og jafnréttismálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, um barnaverndarmál kl. 11.00 mánudaginn 30. apríl. Bein útsending verður frá fundinum.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.