Upptaka af opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd 26. mars 2012

26.3.2012

Opinn fundur var haldinn í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis mánudaginn 26. mars 2012. Rætt var um störf peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands.

Hljóð- og myndupptökur af opnum fundum fastanefnda eru á vefsíðum nefndanna og á vefsíðu með upptökum af öllum opnum nefndarfundum. Gestir fundarins voru Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Arnór Sighvatsson og Gylfi Zoëga. Efni fundarins varðar störf peningastefnunefndar, sbr. 3. mgr. 24. gr. laga um Seðlabanka Íslands.

Dagskrá fundarins.

Fundurinn var haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og var opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi.

Bein útsending var frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.