Nýr ritari fjárlaganefndar hefur störf
Jón Magnússon, viðskiptafræðingur og MBA, hóf nýlega störf á nefndasviði Alþingis sem ritari fjárlaganefndar.
Jón hefur langa starfsreynslu í opinberum fjármálum hjá Stjórnarráðinu, síðast sem skrifstofustjóri rekstrar- og fjármálaskrifstofu í innanríkisráðuneytinu og áður dómsmálaráðuneytinu.