Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 29. nóvember

25.11.2011

Opinn fundur verður haldinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis með umboðsmanni Alþingis þriðjudaginn 29. nóvember kl. 10.00. Fjallað verður um skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010.

Gestir á fundinum verða þeir Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis, Róbert Spanó prófessor og Særún María Gunnarsdóttir lögfræðingur.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Upptaka af fundinum er á síðu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og á vefsíðu með upptökum af öllum opnum nefndarfundum.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.