Dagskrárliður 2 opinn fréttamönnum á fundi efnahags- og viðskiptanefndar 22. nóvember

21.11.2011

Dagskrárliður 2 á fundi efnahags- og viðskiptanefndar 22. nóvember verður opinn fréttamönnum. Fundurinn hefst kl. 13. Til umræðu verður efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar, tillögur Framsóknarflokks og tillögur Sjálfstæðisflokks. Gestir fundarins verða Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra og fleiri, sjá dagskrá fundarins.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.

Fundurinn er opinn fréttamönnum en er hvorki tekinn upp né sent beint út frá honum á vegum Alþingis.

Fundurinn verður haldinn með stoð í nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.