Upptaka af opnum fundi í allsherjar- og menntamálanefnd með innanríkisráðherra

18.10.2011

Opinn fundur var haldinn í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þriðjudaginn 18. október 2011 kl. 11.10. Gestur fundarins var Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ásamt Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra og Bryndísi Helgadóttur skrifstofustjóra. Rætt var um þau mál sem ráðherra hyggst leggja fram á yfirstandandi þingi.

Bein útsending var frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. Hljóð- og myndupptökur af fundinum eru á vefsíðu allsherjar- og menntamálanefndar.