Opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd með mennta- og menningarmálaráðherra fimmtudaginn 13. október - bein útsending

12.10.2011

Opinn fundur verður haldinn í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis fimmtudaginn 13. október 2011 kl. 9. Áætlað er að fundurinn standi í klukkustund.

Gestur fundarins verður Svandís Svavarsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Rætt verður um þau mál sem ráðherra hyggst leggja fram á komandi þingi.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.