Upptaka af opnum fundi um Vaðlaheiðargöng í samgöngunefnd

25.3.2011

Opinn fundur var haldinn í samgöngunefnd Alþingis föstudaginn 25. mars 2011 kl. 13.30. Rætt var um Vaðlaheiðargöng. Gestir fundarins voru Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf., Jón Þorvaldur Heiðarsson, sérfræðingur við Háskólann á Akureyri, og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.

Fundurinn var sendur beint út á vef Alþingis og eru nú aðgengilegar hljóð- og myndupptökur á vefsíðu samgöngunefndar.