Opinn fundur í umhverfisnefnd um Vatnajökul 4. mars

3.3.2011

Opinn fundur verður haldinn í umhverfisnefnd um málefni Vatnajökulsþjóðgarðs föstudaginn 4. mars kl. 16.00. Einkum verður fjallað um nýsamþykkta verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn. Gestir fundarins verða Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Glóey Finnsdóttir lögfræðingur í umhverfisráðuneyti, Hugi Ólafsson skrifstofustjóri í umhverfisráðuneyti og Kristveig Sigurðardóttir formaður stjórnar Vatnjökulsþjóðgarðs.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.