Upptaka af opnum fundi um Íbúðalánasjóð

22.11.2013

Upptaka af opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 22. nóvember 2013 um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl. er á síðu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrsluna ásamt gögnum sem tengjast umfjöllun nefndarinnar um málið.


Gestir voru:
kl. 13:00
Árni Magnússon, fyrrverandi félagsmálaráðherra

kl. 14:00
Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi og
Lárus Ögmundsson, yfirlögfræðingur hjá Ríkisendurskoðun
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins og
Íris Björnsdóttir, sérfræðingur í fjárhagslegu eftirliti hjá Fjármálaeftirlitinu.

Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.