Opinn fundur um vernd tjáningarfrelsis - bein útsending

18.10.2017

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund fimmtudaginn 19. október kl. 9.10. Umfjöllunarefni fundarins er vernd tjáningarfrelsis. 

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. 

Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.

Gestir fundarins: 

kl. 9.10 Þórólfur Halldórsson sýslumaður, Þuríður Árnadóttir sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs og staðgengill sýslumanns og Brynjar Kvaran sviðsstjóri fullnustusviðs.

kl. 9.35 Eiríkur Jónsson lögfræðingur, Hallgrímur Óskarsson varaformaður Gagnsæis.

kl. 10.00 Sigríður Rut Júlíusdóttir, hæstaréttarlögmaður, Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands.

kl. 10.25 Arna Schram nefndarmaður í fjölmiðlanefnd og Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, lögfræðingur fjölmiðlanefndar.