Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 79. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 352  —  79. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um brunavarnir, nr. 75/2000, með síðari breytingum.

Frá umhverfisnefnd.



     1.      1. gr. orðist svo:
                      1. gr. laganna orðast svo:
                      Markmið laga þessara er að vernda líf og heilsu manna, umhverfi og eignir með því að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit, forvarnir og viðbúnað við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.
     2.      Við 3. gr.
                  a.      B-liður orðist svo: Skilgreining hugtaksins mannvirki verður svohljóðandi: Hvers konar jarðföst, manngerð smíð, svo sem hús og aðrar byggingar eða skýli, samgöngumannvirki, þ.m.t. flugvellir, dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, fráveitumannvirki, umferðar- og göngubrýr í þéttbýli, skilti og togbrautir til fólksflutninga. Til mannvirkja teljast einnig tímabundnar og lausar byggingar sem ætlaðar eru til svefns eða daglegrar dvalar manna í fjóra mánuði eða lengur á sama stað, svo sem starfsmannabúðir og húsvagnar. Mannvirki á eða í hafi, vötnum og ám sem hafa fasta staðsetningu teljast einnig til mannvirkja samkvæmt lögum þessum.
                  b.      Við bætist tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
                      c.      Skilgreining hugtaksins mengunaróhapp verður svohljóðandi: Þegar bráðamengun verður og eiturefni eða önnur efni berast eða kunna að berast í umhverfið og tafarlaus úrræði eru nauðsynleg vegna hættu á tjóni á umhverfi, heilsu fólks eða eignum.
                      d.      Við bætast fjórar nýjar skilgreiningar í réttri stafrófsröð, svohljóðandi:
                                  Mengun: Þegar örverur, efni og efnasambönd og eðlisfræðilegir þættir valda óæskilegum og skaðlegum áhrifum á heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreinkun lofts, láðs eða lagar. Mengun tekur einnig til ólyktar, hávaða, titrings, geislunar og varmaflæðis, og hvers kyns óæskilegra eðlisfræðilegra þátta.
                                  Mengunartjón: Tjón eða skaði sem hlýst af mengun umhverfis, hvar sem slík mengun kann að eiga sér stað á landi og af hvers konar völdum sem hún er. Mengunartjón tekur einnig til kostnaðar vegna ráðstafana til að koma í veg fyrir tjón eða frekara tjón, og til skaða sem hlýst af slíkum ráðstöfunum.
                                  Reykköfun: Athafnir slökkviliðs þegar loft undir þrýstingi er notað til öndunar við slökkvistarf í afmörkuðu rými eða þar sem mengunaróhapp hefur orðið.
                                  Umhverfi: Samheiti fyrir menn, dýr, plöntur og annað í lífríkinu, jarðveg, jarðmyndanir, vatn, loft, veðurfar og landslag, samfélag, heilbrigði, menningu og menningarminjar, atvinnu og efnisleg verðmæti.
     3.      Við 4. gr. Í stað orðsins „Byggingarstofnun“ komi: Mannvirkjastofnun.
     4.      Við 6. gr.
                  a.      Í stað orðsins „Byggingarstofnun“ komi: Mannvirkjastofnun.
                  b.      Við bætist nýr liður, svohljóðandi: Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Að beiðni slökkviliðsstjóra getur Mannvirkjastofnun gert úttekt á brunavörnum mannvirkja í rekstri þar sem tilteknir starfsmenn eru þjálfaðir í brunavörnum og slökkvistarfi, sbr. 3. mgr. 24. gr.
     5.      Við 7. gr.
                  a.      Í stað orðsins „Byggingarstofnun“ 1. og 3. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. komi: Mannvirkjastofnun.
                  b.      2. málsl. 1. mgr. orðist svo: Skólinn skal hafa umsjón með menntun slökkviliðsmanna, bóklegri og verklegri, og fræðslu þeirra í starfi.
     6.      Við 8. gr.
                  a.      1. málsl. b-liðar orðist svo: Í reglugerð skal kveða á um lágmarkskröfur um tækjakost, húsnæði og mannafla slökkviliða, svo og um vatnsöflun til slökkvistarfa.
                  b.      Í stað orðsins „Byggingarstofnunar“ í 2. málsl. b-liðar komi: Mannvirkjastofnunar.
     7.      Við 9. gr.
                  a.      Á eftir a-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Orðin „í notkun“ í b-lið falla brott.
                  b.      C-liður orðist svo: E-liður 1. mgr. orðast svo: hafa eftirlit með því að eigendur og forráðamenn mannvirkis í rekstri sinni skyldum sínum um brunavarnir samkvæmt lögum og reglugerðum í samræmi við leiðbeiningar sem Mannvirkjastofnun gefur út. Ef ljóst þykir að hætta skapist af ástandi brunavarna og eigandi eða forráðamaður mannvirkis sinnir ekki tilmælum slökkviliðsstjóra um úrbætur án ástæðulauss dráttar, eða ef um ítrekuð brot viðkomandi eiganda eða forráðamanns er að ræða, skal kæra málið til lögreglu.
                  c.      2. og 3. málsl. d-liðar orðist svo: Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við einstök verkefni og skal byggð á rekstraráætlun þar sem fram koma þau rök sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjald skal ekki vera hærra en nemur kostnaði við úttektina.
     8.      Við 10. gr. Í stað orðsins „Byggingarstofnunar“ komi: Mannvirkjastofnunar.
     9.      Við 11. gr. Í stað orðsins „Byggingarstofnun“ komi: Mannvirkjastofnun.
     10.      Á eftir 11. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      1. mgr. 15. gr. laganna orðast svo:
                      Sveitarstjórn ræður slökkviliðsstjóra. Slökkviliðsstjóri ræður annað starfslið slökkviliðsins. Í forföllum slökkviliðsstjóra er varaslökkviliðsstjóri yfirmaður slökkviliðs.
     11.      Við 13. gr.
                  a.      Í stað orðsins „Byggingarstofnun“ í a-lið komi: Mannvirkjastofnun.
                  b.      Á eftir orðinu „læknisskoðun“ í b-lið komi: þrekpróf, þolpróf og aðra mælingu líkamsástands.
                  c.      Í stað orðsins „Byggingarstofnunar“ í c-lið komi: Mannvirkjastofnunar.
     12.      14. gr. orðist svo:
                      1. mgr. 20. gr. laganna orðast svo:
                      Slökkviliðsstjóra og eftirlitsmönnum hans skal heimill aðgangur til skoðunar og eftirlits, þar á meðal til myndatöku, á öllum þeim stöðum þar sem skoðunar eða eftirlits er þörf samkvæmt lögum þessum. Ekki er þó heimilt að fara í þessum tilgangi inn í íbúðarhús sem tekið hefur verið í notkun án samþykkis eiganda eða umráðamanns húsnæðisins nema að fengnum úrskurði dómara.
     13.      Á eftir 14. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      2. og 3. mgr. 21. gr. laganna orðast svo:
                      Þegar eldsvoða eða mengunaróhapp ber að höndum er hverjum manni skylt að leyfa aðgang að húsi sínu og lóð og una því að brotið verði niður og rutt burt því sem til fyrirstöðu er við slökkvistarf eða aðgerðir vegna mengunaróhapps. Heimilt er að rífa niður byggingar ef slökkviliðsstjóri álítur það nauðsynlegt til að stöðva útbreiðslu elds eða mengunar. Slökkvilið hefur rétt til að nota öll tæki og áhöld sem til næst og að gagni mega koma við störf sín þegar eldsvoða eða mengunaróhapp ber að höndum.
                      Fjártjón sem hlýst af ráðstöfunum vegna eldsvoða skv. 2. mgr. telst brunatjón og skal viðkomandi vátryggingafélag bæta það sé eign brunatryggð. Sveitarstjórn greiðir kostnað sem kann að koma til vegna nauðsynlegra aðgerða við framkvæmd slökkvistarfs og vátryggingafélag greiðir ekki. Sveitarstjórn greiðir einnig kostnað sem kann að koma til vegna nauðsynlegra aðgerða vegna mengunaróhapps í þeim tilvikum þegar sá sem veldur mengunaróhappi er ekki ábyrgur fyrir kostnaði við slíkar aðgerðir samkvæmt öðrum lögum.
     14.      16. gr. orðist svo:
                      24. gr. laganna orðast svo ásamt fyrirsögn:

Sérstök eldhætta eða hætta á mengun frá mannvirki eða lóð þess.


                  Skylt er að láta fara fram sérstaka brunahönnun á mannvirki og/eða lóð þegar um er að ræða nýtt mannvirki þar sem margir starfa, koma saman, fara um eða dveljast eða þar sem hætta er á stórfelldu eignatjóni í eldsvoða. Brunahönnun skal lögð fyrir byggingarnefnd til samþykktar, sé hún til staðar, að öðrum kosti byggingarfulltrúa. Byggingarnefnd eða byggingarfulltrúi skal leita álits slökkviliðsstjóra um brunahönnun áður en hún er samþykkt.
                  Sé um að ræða lóð eða mannvirki sem þegar er byggt og er í rekstri og þar sem af fyrirhugaðri starfsemi stafar sérstök eldhætta eða þar sem margir starfa, koma saman, fara um eða dveljast eða þar sem hætta er á stórfelldu eignatjóni í eldsvoða skal slökkviliðsstjóri gera úttekt á brunavörnum þess, gera kröfu um úrbætur ef ástæða er til og leggja hana fyrir eiganda eða forráðamann. Sé brunavörnum slíks mannvirkis og lóðar í veigamiklum atriðum ábótavant getur slökkviliðsstjóri eða byggingarfulltrúi gert kröfu um að gerð sé brunahönnun á mannvirkinu.
                  Slökkviliðsstjóri getur að höfðu samráði við sveitarstjórn lagt svo fyrir að í mannvirkjum eða á lóðum, sbr. 2. mgr., séu gerðar sérstakar ráðstafanir til brunavarna, t.d. með uppsetningu á sérhæfðum búnaði til viðvörunar- og slökkvistarfs og þjálfun tiltekinna starfsmanna í brunavörnum og slökkvistarfi. Vegna mannvirkja þar sem um er að ræða starfsemi sem af stafar sérstök slysahætta, svo sem á stærri flugvöllum, getur slökkviliðsstjóri krafist skýrslu um viðbragðsstyrk, þ.m.t. mannafla og búnað, frá þeim sem rekur mannvirkið eða eiganda þess. Sé viðbragðsstyrkur ófullnægjandi að mati slökkviliðsstjóra skal hann gera kröfu um úrbætur og grípa til aðgerða skv. VIII. kafla ef henni er ekki sinnt. Ráðstafanir skv. 1. og 2. málsl. skulu koma fram í brunavarnaáætlun. Eigandi mannvirkis greiðir kostnað af slíkum ráðstöfunum.
                  Ráðherra skal að fengnum tillögum Brunamálastofnunar setja reglugerð um brunahönnun mannvirkja og lóða.
     15.      Við 17. gr. Í stað orðanna „Byggingarstofnun“ og „Byggingarstofnunar“ komi: Mannvirkjastofnun, og: Mannvirkjastofnunar.
     16.      Við 20. gr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Slökkviliðsstjóri getur ákveðið að gerðar verði nauðsynlegar úrbætur á kostnað eiganda eða forráðamanns mannvirkis.
     17.      Við 22. gr. Í stað orðsins „Byggingarstofnun“ komi: Mannvirkjastofnun.
     18.      23. gr. orðist svo:
                  Á eftir 38. gr. laganna kemur ný grein, 38. gr. a, sem orðast svo ásamt fyrirsögn:
        

Þjónustuaðilar brunavarna.


                  Þeir sem bjóða þjónustu við viðhald, skoðun, áfyllingu og þrýstiprófun handslökkvitækja og reykköfunarbúnaðar skulu hafa starfsleyfi Mannvirkjastofnunar. Skilyrði til að öðlast slíkt starfsleyfi er að viðkomandi þjónustuaðili uppfylli kröfur reglugerðar sem ráðherra setur um húsnæði, öryggi og lágmarkstækjabúnað vegna starfseminnar og að þeir starfsmenn sem annast uppsetningu, viðhald og skoðun slíks búnaðar hafi lokið námi og staðist próf sem Mannvirkja stofnun heldur.
                  Þeir sem annast uppsetningu, viðhald og þjónustu brunaviðvörunarkerfa og slökkvikerfa, svo og þeir sem annast brunaþéttingar mannvirkja, skulu hafa starfsleyfi frá Mannvirkjastofnun og skulu viðkomandi starfsmenn hafa lokið námi sem Mannvirkjastofnun viðurkennir.
                  Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis skv. 1. og 2. mgr. er að sett hafi verið upp fullnægjandi gæðastjórnunarkerfi vegna starfseminnar í samræmi við kröfur sem ákveðnar eru í reglugerð.
                  Mannvirkja stofnun getur svipt þjónustuaðila starfsleyfi ef hann uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir leyfisveitingu. Sama á við ef þjónustuaðili hlítir ekki fyrirmælum Mannvirkja stofnunar eða brýtur ítrekað gegn ákvæðum laga þessara eða reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim.
                  Ráðherra setur í reglugerð nánari kröfur um framkvæmd þessarar greinar, þ.m.t. um veitingu starfsleyfis fyrir starfsmenn þjónustuaðila og um nám þeirra og próf.
                  Mannvirkjastofnun er heimilt að innheimta gjald við útgáfu starfsleyfis samkvæmt þessari grein, og fyrir námskeiðshald. Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við einstök verkefni og skal byggð á rekstraráætlun þar sem fram koma þau rök sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður. Gjaldskrá skal birt í B- deild Stjórnartíðinda.