Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1594 — 680. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, búnaðarlögum og tollalögum (búvörusamningar, búnaðarlagasamningur).
Frá 1. minni hluta atvinnuveganefndar (KLM).
1. 3. gr. orðist svo:
1. málsl. 4. mgr. 7. gr. laganna orðast svo: Samtök afurðastöðva fyrir búvörur tilnefna einn fulltrúa í nefndina og minni vinnslufyrirtæki mjólkur tilnefna einn fulltrúa.
2. 8. gr. orðist svo:
Í stað 3. mgr. 13. gr. laganna koma fimm nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Afurðastöð skal selja öðrum vinnsluaðilum mjólk og aðrar mjólkurafurðir til framleiðslu á mjólkurvörum á verði sem er í samræmi við 1. mgr. og gildir með sama hætti gagnvart framleiðsluhluta afurðastöðvar og öðrum vinnsluaðilum. Sama jafnræði skal gilda um önnur viðskiptakjör og skilmála.
Söluskylda afurðastöðvar nemur allt að 20% af mjólk og mjólkurafurðum sem hún tekur við. Viðmið þetta skal endurskoða eigi síðar en árið 2019.
Aðrir vinnsluaðilar skv. 3. mgr. teljast vera þeir aðilar sem eru ekki í eigna- eða stjórnunartengslum við afurðastöð.
Sú deild afurðastöðvar sem annast sölu á mjólk og mjólkurafurðum skal vera fjárhagslega og stjórnunarlega aðskilin frá annarri starfsemi hennar.
Eftirlit með framkvæmd þessarar greinar skal vera hluti þess eftirlits sem Samkeppniseftirlitið hefur með markaðsráðandi afurðastöðvum á grundvelli samkeppnislaga. Brot gegn þessari grein varða sömu viðurlögum og brot gegn 11. gr. samkeppnislaga.
3. Í stað „31. desember 2026“ í 1. efnismgr. 18. gr., a-lið 21. gr., 1. efnismgr. 28. gr. og 1. efnismgr. 33. gr. komi: 31. desember 2019.
4. Í stað ártalsins „2026“ í 23., 31. og 37. gr. komi: 2019.
5. Á eftir a-lið 39. gr. komi nýr stafliður, svohljóðandi: 3. málsl. 3. mgr. orðast svo: Berist umsóknir um meiri innflutning en sem nemur tollkvóta vörunnar skal láta hlutkesti ráða úthlutun en hver umsækjandi ásamt tengdum aðilum skulu þó hljóta að hámarki 15% af heildarmagni tollkvótans.
6. 41. gr. orðist svo:
71. gr. laganna fellur brott.
7. Á eftir 62. gr. komi nýr kafli, IV. kafli, Breyting á lögum um velferð dýra, nr. 55/2013, með síðari breytingum, með einni nýrri grein, svohljóðandi:
Á eftir 44. gr. laganna kemur ný grein, 44. gr. a, svohljóðandi:
Nú hefur umráðamaður ítrekað gerst brotlegur við ákvæði laga þessara og skal þá fella niður opinberar greiðslur í landbúnaði til hans.