Ferill 500. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 821  —  500. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um fullgildingu heildarsamnings um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Ekvador.


Frá utanríkisráðherra.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd heildarsamning um efnahagslegu samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Ekvador sem undirritaður var 25. júní 2018 á Sauðárkróki.

Greinargerð.

    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Ekvador sem undirritaður var á Sauðárkróki 25. júní 2018. Meginmál samningsins er prentað sem fylgiskjal með tillögu þessari. Viðaukar við samninginn verða sendir utanríkismálanefnd og birtir á vef Alþingis.
    EFTA-ríkin og Ekvador hófu viðræður um gerð fríverslunarsamnings í nóvember árið 2016 og lauk þeim í febrúar 2018. Samningurinn kveður á um gagnkvæma niðurfellingu og lækkun tolla á iðnaðarvörur, sjávarafurðir og unnar og óunnar landbúnaðarvörur. Þannig munu tollar á hvers kyns sjávarafurðir og iðnaðarvörur, sem fluttar eru út frá Íslandi til Ekvador, falla niður frá gildistöku samningsins eða á aðlögunartíma og sama á við um helstu landbúnaðarvörur sem framleiddar eru hér á landi til útflutnings.
    Útflutningur frá Íslandi til Ekvador hefur verið lítill í gegnum tíðina og nam tæpum 30 milljónum kr. á síðasta ári. Er þar nær einungis um að ræða útflutning á iðnaðarvörum. Innflutningur frá Ekvador hefur einnig verið lítill en hefur þó aukist undanfarin ár og nam um 600 milljónum kr. árið 2017. Er þar að mestu um að ræða innflutning á ávöxtum og öðrum matvælum. Með gagnkvæmri niðurfellingu og lækkun tolla skapar samningurinn forsendur fyrir auknum viðskiptum milli landanna.
    EFTA-ríkin, Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss, hafa nú gert 28 fríverslunarsamninga við alls 39 ríki, að samningnum við Ekvador meðtöldum.

Nánar um fríverslunarsamninginn.
    Efni fríverslunarsamningsins skiptist upp í 12 kafla og 18 viðauka þar sem m.a. er kveðið á um vöruviðskipti, þjónustuviðskipti, rétt til stofnsetningar, verndun hugverkaréttar, opinber innkaup, samkeppni, viðskipti og sjálfbæra þróun, auk hefðbundinna ákvæða um sameiginlega nefnd samningsaðila og lausn deilumála.
    Í formálsorðum samningsins er gerð grein fyrir ýmsum forsendum og markmiðum samningsaðila. Þar kemur m.a. eftirfarandi fram:
     .      Lýst er yfir vilja ríkjanna til að efla tengsl milli EFTA-ríkjanna og Ekvador og skapa hagstæð skilyrði fyrir þróun og fjölbreytni í viðskiptum sín á milli og fyrir aukna samvinnu, bæði viðskiptalega og efnahagslega, á sviðum þar sem ríkin eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta, á grundvelli jafnréttis, gagnkvæms ávinnings, jafnræðis og þjóðaréttar.
     .      Áréttuð er skuldbinding ríkjanna um að styðja við lýðræði, réttarreglur, mannréttindi og mannfrelsi í samræmi við skuldbindingar sínar að þjóðarétti, meðal annars eins og fram kemur í sáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindayfirlýsingu SÞ.
     .      Ítrekaður er vilji samningsaðila til að stuðla að heildrænni efnahagsþróun með það að markmiði að draga úr fátækt, skapa ný atvinnutækifæri, bæta lífskjör og tryggja öfluga vernd heilsu, öryggis og umhverfis.
     .      Áréttuð er skuldbinding ríkjanna um að stefna að markmiðinu um sjálfbæra þróun og að þau geri sér grein fyrir mikilvægi samræmdrar stefnu á sviði viðskipta, umhverfis- og atvinnumála.
     .      Staðfestur er vilji samningsaðila um að beita samningi þessum í samræmi við þau markmið að varðveita og vernda umhverfið með traustri umhverfisstjórnun og stuðla með þeim hætti að hagkvæmustu nýtingu auðlinda heimsins í samræmi við markmiðið um sjálfbæra þróun.
     .      Áréttuð er skuldbinding samningsaðila samkvæmt marghliða samningum um umhverfismál sem ríkin eru aðilar að og byggjast á virðingu fyrir grund-vallarviðmiðum og réttindum við vinnu, meðal annars viðmiðum sem sett eru fram í samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem ríkin eiga aðild að.
     .      Áréttað er mikilvægi góðra stjórnunarhátta og samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja í þágu sjálfbærrar þróunar og sem staðfesta þá ætlun að hvetja fyrirtæki til þess að virða alþjóðlega viðurkenndar leiðbeiningar og meginreglur í því tilliti, eins og hnattrænt samkomulag Sameinuðu þjóðanna um siðferði og ábyrgð í viðskiptum.
    Í 1.–2. kafla og viðaukum I–VIII er að finna almenn ákvæði og ákvæði um niðurfellingu tolla og önnur ákvæði tengd viðskiptum með vörur. Auk ákvæða um tolla er þar meðal annars að finna ákvæði um upprunareglur, ráðstafanir á sviði hollustuhátta og heilbrigðis dýra og plantna, tæknilegar reglur, viðskiptaliprun, ríkisrekin fyrirtæki á sviði verslunar, styrki og jöfnunarráðstafanir, ráðstafanir gegn undirboðum og verndarráðstafanir. Kveðið er á um gagnkvæma niðurfellingu tolla af hvers kyns iðnaðarvörum og sjávarafurðum sem framleiddar eru í ríkjum samningsaðila og fluttar inn til gagnaðila. Í II. viðauka, þar sem fjallað er um niðurfellingu og lækkun tolla af landbúnaðarvörum í viðskiptum milli Íslands og Ekvador, kemur fram að tollar munu falla niður af helstu landbúnaðarvörum sem framleiddar eru til útflutnings hér á landi, svo sem lambakjöti, hrossakjöti, vatni og bjór.
    Í 3. kafla og viðaukum XI–XIV eru ákvæði um þjónustuviðskipti, þ.m.t. skuldbindingar samningsaðila um markaðsaðgang til handa þjónustuveitendum frá ríkjum gagnaðila, svo og rétt til stofnsetningar fyrirtækja í landi gagnaðila. Í þeim er að mestu byggt á skuldbindingum ríkjanna skv. ákvæðum hins almenna samnings um þjónustuviðskipti (General Agreement on Trade and Services, GATS) Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Áréttað er að einstakir samningsaðilar hafi fullt forræði yfir eigin orkuauðlindum og ákvörðunum um hvaða landsvæði verði nýtt fyrir rannsóknir, þróun og nýtingu orkuauðlinda.
    Í 5. kafla og viðauka XVI eru ákvæði um vernd hugverkaréttar. Þau byggja á ákvæðum samnings Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um hugverkarétt í viðskiptum (TRIPS), jafnframt því sem áréttuð er skuldbinding ríkjanna til að gerast aðilar að tilteknum alþjóða-samningum á sviði hugverkaréttar.
    Í 6. kafla og viðauka XVII er fjallað um opinber innkaup og gagnkvæman rétt til þátttöku í útboðum yfir tilteknum viðmiðunarfjárhæðum af hálfu opinberra aðila í ríkjunum. Byggt er á samningi WTO um opinber innkaup sem Ísland er aðili að. Engar breytingar eru á íslenskum reglum hvað þessi mál varðar.
    Í 7. kafla er kveðið á um samkeppnismál. Áréttað er að samráð milli fyrirtækja sem leiðir til röskunar á samkeppni svo og misnotkun á markaðsráðandi stöðu sé ósamrýmanlegt markmiðum samningsins. Jafnframt er kveðið á um samvinnu milli ríkjanna á sviði samkeppnismála, m.a. með gagnkvæmum upplýsingaskiptum milli samkeppnisyfirvalda ríkjanna.
    Í 8. kafla er fjallað um viðskipti og sjálfbæra þróun. Samningsaðilar viðurkenna að efnahagsleg þróun, félagsleg þróun og umhverfisvernd séu sjálfstæðir þættir sem styðja með gagnkvæmum hætti við sjálfbæra þróun. Ríkin árétta skuldbindingar sínar samkvæmt fjölþjóðlegum samningum og grundvallarreglum tengdum umhverfi og vinnumarkaði og ábyrgjast að viðhalda verndarstigi þeirra, jafnframt því sem ítrekað er að ríkin hafi fullan rétt á því að setja eigin umhverfis- og vinnuverndarlöggjöf. Tekið er fram að samningsaðilar árétti skyldur sínar til að virða, efla og framkvæma þær meginreglur um grundvallarréttindi sem er að finna í yfirlýsingu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um grundvallarviðmið og réttindi við vinnu og í áréttingu stofnunarinnar sem Alþjóðavinnumálaþingið samþykkti árið 1998.
    Í 10.–12. kafla eru meðal annars ákvæði um framkvæmd samningsins, lausn deilumála, breytingar á samningnum og gildistöku hans. Sett er á stofn sameiginleg nefnd ríkjanna sem ætlað er að fjalla um framkvæmd samningsins, t.d. einstök vandamál í viðskiptum milli ríkjanna. Kveðið er á um lausn ágreiningsmála um túlkun og beitingu samningsins í formi sáttaumleitana, eða eftir atvikum með stofnun gerðardóms ef samkomulag næst ekki með öðrum hætti.

Fylgiskjal.
Heildarsamningur um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Ekvador.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.